Product Description
Bona rykmoppan er einnig gerð úr örtrefjum. Hún er gædd þeim eiginleikum að vera hlaðin stöðurafmagni svo hún bókstaflega dregur í sig ryk, gæludýrahár og önnur óhreinindi af gólfinu og skilur það eftir án allra yfirborðsóhreininda.
Moppan er ávallt notuð þurr og er einfaldlega fest á festiplötuna á Bona moppustönginni og strokið létt yfir gólfið. Nota má moppuna á allar gerðir gólfefna, s.s. viðargólf, parketlíki, flísar, náttúrustein osfrv.
Rykmoppuna má þvo í þvottavél við 60°c og setja í þurrkara. Ekki má nota nein aukaefni eins og klór eða mýkingarefni þar sem það skemmir eiginleika moppunnar.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar