banner

Viðhald á sólpallinum – Sólpallaslípun

parket,

Viðhald á sólpallinum – Sólpallaslípun

 

Með hækkandi sólu þarf að huga að ýmsum þáttum eins og t.d. sólpallinum eða skjólveggnum.   Til þess að halda fallegum og góðum palli sem nýtur sín vel í garðinum er gott að viðhalda honum vel.  Með meðfylgjandi myndbandi sýnir BYKO þeirra útgáfu yfir hvað þarf að hafa í huga áður en við hefjumst handa og hvernig best er að viðhalda pallinum.

Aftur á móti getur vel verið að sólpallurinn sé það illa farinn, eða hefur ekki fengið viðhald það lengi, að best sé einfaldlega að slípa hann upp og byrja upp á nýtt.  Til þess að útlitið haldist fallegt þarf að koma nýrri viðarvörn á hann aftur. Stögugt áreiti útfjólublárra geisla sólar, veðurs og vinda verður til þess að sólpallar, sem ekki fá reglulegt viðhald upplitast, springa og verpast. Sólpallur sem fær reglulegt og gott viðhald lítur ekki aðeins betur út, hann endist líka mun lengur.

Parketslípun Íslands getur boðið pallaslípun þar sem eldri pallaolía eða pallaefni eru hreinsuð af, sólpallurinn slípaður upp og borið á hann á ný.

Með sólpallaslípun verður sólpallurinn eins og nýr á eftir.  Fyrir þá sem hafa hug á því, þarf að panta tíma með góðum fyrirvara þar sem veður yfir sumartíman á Íslandi eru oft vætusöm – þá er ekkrt hægt að gera.

Pantaður frítt verðmat – 456-2006

heidar@parketslipunislands.is

 

About the Author

Heiðar Kristinsson

Með mikla starfsreynslu: Höfundur er menntaður Tölvufræðingur, viðskiptafræðingur og með meistaragráðu í stefnumótun og stjórnun frá háskólanum í Aarhus Danmörku. Höfundur hefur um 25 ára starfsreynslu sem sölumaður, viðskiptastjóri, sölustjóri, sölu- og markaðsstjóri og fjármálaráðgjafi ásamt því að hafa stundað smíðavinnu frá unga aldri.

Visit Us On FacebookVisit Us On PinterestVisit Us On YoutubeVisit Us On TwitterVisit Us On Google Plus