Það er okkur mikil ánægja þegar viðskiptavinir okkar láta í ljós ánægju sína. Ungt par í Hafnarfirði gerði það heldurbetur og sendi myndir af fyrir og eftir slípun, á tímalínu sína á Facebook. Hér má sjá meðfylgjandi mynd sem þau sendu á vini sína. Einnig sendu þau skilaboð á okkur þess efnis „…erum í skýjunum með gólfið og takk kærlega fyrir okkur“ voru skilaboðin.
Það er nefnilega gaman að segja frá því að það er hægt að gera ótrúlegustu hluti með parketslípun. Það er í raun hægt að slípa upp öll parket og gera þau eins og ný. Þetta er ódýrari aðgerð heldur en að skipta út því parketi sem er fyrir og minna rask þannig séð. Parketslípun Íslands sérhæfir sig í parketslípun og lökkun þar sem eldra gólf er tekið í gegn og fegrað. Parketslípun Íslands leggur metnað sinn í hvert verkefni og það skilar sér ávalt í ánægju viðskiptavina okkar.
Pantið frítt verðmat í síma: 456-2006