Þar sem starfsmenn Parketslípunar Íslands sitja ekki við tölvu allan daginn, er síminn oft mjög handhægur. Á Facebooksíðu Parketslípunar Íslands eru myndir sem teknar eru þegar verið er að vinna ákveðin verk. Það getur því verið ágætt að kíkja þar inn til að sjá hvað verið er að gera og til að fylgjast með því hvernig hin ýmsu gólfefni fá nýtt líf.
Parketslípun Íslands er að störfum nánast allan sólarhringinn þessa dagana, hvort sem það eru virkir dagar eða helgar. Það er alltaf gaman að geta sýnt svo afraksturinn þeim sem þekkja þetta ekki nógu vel og hafa ekki kynnst því að láta slípa og laga parketgólfin sín. Sjón er sögu ríkari.
Facebooksíða Parketslípunar Íslands hér: